Psalms 111

1Halelúja. Ég vil lofa Drottin af öllu hjarta, í félagi og söfnuði réttvísra. 2Mikil eru verk Drottins, verð íhugunar öllum þeim, er hafa unun af þeim. 3Tign og vegsemd eru verk hans og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu. 4Hann hefir látið dásemdarverka sinna minnst verða, náðugur og miskunnsamur er Drottinn. 5Hann hefir gefið fæðu þeim, er óttast hann, hann minnist að eilífu sáttmála síns. 6Hann hefir kunngjört þjóð sinni kraft verka sinna, með því að gefa þeim eignir heiðingjanna. 7Verk handa hans eru trúfesti og réttvísi, öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg, 8örugg um aldur og ævi, framkvæmd í trúfesti og réttvísi. 9Hann hefir sent lausn lýð sínum, skipað sáttmála sinn að eilífu, heilagt og óttalegt er nafn hans. 10Upphaf speki er ótti Drottins, hann er fögur hyggindi öllum þeim, er iðka hann. Lofstír hans stendur um eilífð.
Copyright information for Icelandic